Falleg og vel endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð við Hjallabraut 39 í Hafnarfirði. Úr íbúðinni er frábært útsýni og skipulag hennar er gott.
Samkvæmt skráningu HMS er íbúðin 108,9 fm að stærð, auk sérgeymslu sem er 6,1 fm. Heildarstærð eignarinnar er því um 115 fm.Forstofa er með harðparketi á gólfi og fataskápum. Hol og gangur eru einnig með harðparketi. Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar, með harðparketi á gólfi og útgengi út á suðursvalir, flott útsýni.
Eldhúsið er snyrtilegt með fallegri innréttingu, helluborði, háfi, ofni í vinnuhæð og innbyggðum ísskáp. Þvottahús er innaf eldhúsi, með harðparketi á gólfi, innréttingu og glugga.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og við sturtu, með góðri innréttingu, vegghengdu salerni, gólfhita, handklæðaofni og glugga.
Í íbúðinni eru þrjú/tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfum, þar af eru fataskápar í tveimur þeirra, ath búið að opna á milli barnaherbergjana, ekkert mál að breyta þeim aftur í tvö hebergi. Sér geymsla í kjallara, hefðbundin hjóla- og vagnageymsla.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is