Albert og Lind fasteignasala kynna fallega 4-5 herbergja 198 fm efri sérhæð að Hesthömrum 5 í fallegu tvíbýli ásamt meðtöldum 50 fm bílskúr í rólegum botnlanga í þessu vinsæla hverfi með leik og grunnskóla í næsta nágrenni.
Eignin skiptist í forstofu, stórt alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, opið herbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing,
forstofa með fataskáp. Alrými með
eldhúsi,
borðstofu og
stofu með útgengi á svalir. Góð lofthæð er í rýminu. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu, granít á borðum. Falleg eyja og eyjuháfur. Möguleiki er að gera herbergi úr hluta af stofu. Við anddyrið er opið
forstofuherbergi.
Svefnherbergi með fataskápum.
Hjónaherbergi með fataherbergi, úr hjónaherbergi innan gengt í
þvotthús með innréttingu og vask, þar er hægt að ganga út á svalir.
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, glugga, hornbaðkari og sturtuklefa. Baðið er rúmgott með fallegum innréttingum og handklæðaofni.
Bílskúrinn er rúmgóður með góðri
geymslu inn af, sjálfvirkur opnari. Húsið hefur fengið gott viðhald gegnum árin en það fer að koma að málun. Stór innkeyrsla með hita í stétt. Frábær staðsetning með allt það helst í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar um eignina veitir
Albert Bjarni fasteignasali í síma
8210626 eða
albert@fastlind.isSeljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum:
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.