Einstakt tækifæri – Einbýlishúsið Hesjuvellir í Lögmannshlíð
Einstaklega falleg staðsetning með stórbrotnu útsýni og fjölbreytta möguleika – aðeins örfáar mínútur frá miðbæ Akureyrar
Til sölu er einbýlishúsið Hesjuvellir í Lögmannshlíð, staðsett á einum eftirsóttasta stað rétt ofan við Akureyri. Hér sameinast kyrrð sveitalífsins og nálægð við alla þjónustu bæjarins, ásamt óviðjafnanlegu útsýni yfir Akureyri, Eyjafjörð og nærliggjandi fjallahring.
Íbúðarhús með tveimur sjálfstæðum íbúðum
Staðsetningin er einstök – húsið er staðsett í um 200 metra hæð yfir sjávarmáli, rétt norðan við Lögmannshlíðar kirkju og ofan við hesthúsahverfi og reiðhöll. Þaðan er aðeins nokkurra mínútna akstur niður í miðbæ Akureyrar.
Íbúðarhús með mikla möguleika
Íbúðarhúsið er 221,5 m², byggt í tveimur áföngum (1936 og 1976), og skiptist í tvær aðskildar íbúðir með sérinngangi – tilvalið fyrir fjölskyldur, útleigu eða blandaða búsetu.
Aðalíbúðin býður upp á:
Bjarta og rúmgóða stofu með stórkostlegu útsýni
Eldhús með góðu skápaplássi og borðstofu
Forstofu, hol og skrifstofu/herbergi
Hjónaherbergi
Aukaherbergi sett upp með léttum vegg í hluta stofu.
Á neðri hæð:
Þvottahús og geymslur
Sér 50 m² íbúð með eigin inngangi, sérbaðherbergi og eldhúsi – frábær útleigumöguleiki
Hitaveita tengd
Ljósleiðari til staðar
Endurnýjuð kaldavatnsinntök (kalt vatn án endurgjalds)
Möguleikarnir eru margir
Hesjuvellir henta einstaklega vel fyrir:
Ferðaþjónustu eða útleigu
Þá sem vilja sameina sveitalíf og nálægð við bæinn
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.