Um er að ræða sérlega fallega 2.852 m2 eignalóð við Helgadalsveg 51 í Helgadal, Mosfellsbæ. (Markarlækur). Lóðin er skjólsæl og með miklum trjágróðri. Einnig rennur lækurí gegnum landið. Einstakur gróðurreitur í nágrenni Reykjavíkur. Skv drögum að deiliskipulagstillögu sem eigendur hafa lagt fram, var gert ráð fyrir að byggja megi um 280 m2 einbýlishús á lóðinni að meðtöldum núverandi byggngum. Hitaveita er á svæðinu. Núverandi byggingar á lóðinni eru 71,7 m2 timburhús byggt upphaflega árið 1955 en endurbyggt árið 1975, ásamt gestahúsi/geymslu 7,6 m2 og gróðurhúsi 9,8 m2, alls skráð 89,1 m2 skv. fasteignaskrá HMS. Gestahús/geymsla og gróðurhús eru í slæmu ástandi. Núverandi bústaður skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi m/sturtu og salerni og tvö svefnherbergi. Svefnloft yfir hluta hússins. Tilvalinn eign fyrir þá sem vilja búa í sveitasælu skammt frá Reykjavík.
Upplýsingar veitir Runólfur Gunnlaugsson viðsk.fr. og lögg.fast. á Höfða s. 8927798 runolfur@hofdi.is