Einbýlishús á einstökum útsýnisstað á Stöðvarfirði. Nýleg innrétting í eldhúsi og nýleg gólfefni á flestum rýmum á efri hæð. Stofa er rúmgóð og björt með upptekið loft og sérlega fallegu útsýni. Í eldhúsi er nýleg innrétting og góður borðkrókur. Útsýni úr eldhúsi er einnig mjög gott. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu, öll með parket á gólfi og fataskápar eru í öllum herbergjum. Í miðju hússins er hol og þaðan er útgengt á fallega og skjólsæla timburverönd með frábæru útsýni. Baðherbergi var nýlega uppfært, þar eru flísar á gólfi og sturta. Í kjallara er mikið og gott pláss (135,5 m²) með góðri lofthæð en það er að mestu nýtt í dag sem geymsla en bíður upp á ýmsa möguleika, t.d. mögulegt að útbúa þar íbúð. 3ja fasa rafmagn er í kjallara.