ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega vel skipulagða 2 herbergja, 62,4 fm. íbúð á 2 hæð á góðum stað í Keflavík. Staðsetningin er frábær, barnvænt hverfi, stutt í leik- og grunnskólann Heiðarskóla og alla helstu þjónustu.Eignin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstö... Sýna meira
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega vel skipulagða 2 herbergja, 62,4 fm. íbúð á 2 hæð á góðum stað í Keflavík. Staðsetningin er frábær, barnvænt hverfi, stutt í leik- og grunnskólann Heiðarskóla og alla helstu þjónustu.Eignin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu ásamt borðstofu, svalir og geymslu. Gólfefni eru flísar, parket og dúkur. **Neysluvatn endurnýjað 2022.**Þak endurnýjað júní-júlí 2024.**Gler endurnýjað að hluta. **Getur fengist afhent 1.ágúst.Nánari upplýsingar veita:Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur Haukur Andreason Lögfræðingur og Löggiltur fasteignasali, Náðu í söluyfirlit o.fl gögn hér. Nánari lýsing eignar:Komið er inn í anddyri með parket á gólfi og fatahengi.Eldhús hefur parket á gólfi, ágæt innrétting með miklu skápaplássi, bakarrofn, helluborð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Í eldhúsi er borðkrókur.Stofa og borðstofa eru í opnu rými, parket á gólfi, stórir gluggar eru í stofunni sem gerir íbúðina bjarta og fallega. Útgengt er út á svalir.Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, baðkar með sturtuhaus, salerni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.Hjónaherbergið er rúmgott með stórum fataskáp.Sérgeymsla fylgir íbúðinni sem staðsett er á fyrstu hæð ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.Sameignin er snyrtileg og er stigagangur teppalagður. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 59.440 m/vsk.5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.