Lögeign kynnir eignina Heiðargerði 2, 640 Húsavík.Um er að ræða smekklegt og vel skipulagt 183,7 M² einbýlishús með bílskúr í botnlanga með góðu aðgengi. Innra skipulag skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, fjögur svefnherbergi, geymslu/herbergi og bílskúr. Nánari Lýsing: Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu, á V/hendi í forstofunni er eitt svefnherbergi og svo inn af forstofunni tekur við parketlagt hol sem tengir saman stofu, eldhús og herbergisgangi.
Eldhús: viðarlituð innrétting með góðu bekkplássi, innbyggð tæki og við endan á innréttingu er borðkrókur.
Stofa: stofan er mjög rúmgóð og nýtist bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa. Stórir gluggar sem gefa rýminu góða birtu.
Þvottahús og Geymsla/herbergi: er með hvítri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingunni. Inn af þvottahúsinu er geymsla með glugga þar sem er einnig lúga upp á háaloft. Útgengt er úr þvottahúsinu og er þá bílskúrinn við hliðin á hurðinni.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, "walk in" sturta, handklæðaofn, viðarlituð innrétting og vegghengd wc
Fjögur svefnherbergi: Eitt svefnherbergi staðsett inn af forstofunni og svo þrjú á herbergisgang. Útgengt er úr einu herbergjanna út í garð og svo er hjónaherbergið með stórum fataskáp.
Bílskúr: Er rúmgóður og með rafdrifni samlokuhurð. Bílskúrinn er einnig með grifju og í kringum 17 M² kjallara sem er óskráður.
Að utan: í kringum húsið er snyrtilegt. steypt bílastæði upp að húsinu, gróinn garður í kringum hús með skjólvegg og svo stór timburverönd sem er einnig með sauna og heitum pott.
Annað: Loftin í stofunni voru tekinn niður og sett innfelld lýsing árið 2019 ásamt því að parketið var pússað upp og borið á það.
Þakrennur endurnýjaðar ásamt þakskyggni árið 2019 en eftir er að klára að klæða þakskyggnið.
Heilt yfir er hér um að ræða smekklegt hús með góðu skipulagi og vel staðsett.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á