M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu - 5 herbergja parhús við Heiðargerði 29A, 190 Vogum.
Eignin Heiðargerði 29A er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 209-6446, birt stærð 110.1 fm. nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-6446 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
* Endurnýjað járn á þaki
* Gólfhiti og gólfhitagrind
* Skipt um tengla og hluta raflagna
* Baðherbergi endurnýjað
* Eldhús endurnýjað
* Skipt um gólfefni og innihurðirForstofa með flísar á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, ofn, helluborð og vifta. Uppvöskunarvél og ísskápur fylgja, flísar á gólfi.
Stofa er rúmgóð með útgengt út á sólpall.
Fjögur svefnherbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi með flísar á gólfi og veggjum, Walk-in sturta og hvít innrétting við vask.
Geymsluloft er með fellistiga, farið upp gegnum baðherbergi.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.