Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu gott fimm herbergja einbýlishús á einni hæð.Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö baðherbergi, fjögur svefnherbergi og þvottahús/geymslu.
Forstofa er flísalögð og þar er hiti í gólfi.
Gangur er parketlagður
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er góð innrétting með eldunareyju og góðum tækjum, ofn, örbylgjuofn, og helluborð.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, hiti í gólfi, þar er góð innrétting, upphengt salerni og sturtuaðstaða stúkuð af með gleri. Hurð er út á verönd frá baðherbergi.
Stofa er parketlögð og tvær hurðir eru út frá stofu, út á verönd og út á lóð.
Svefnherbergin eru öll parketlögð. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi og flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtuaðstöðu og hita í gólfi.
Innangengt er í
bílskúr en þar er búið að útbúa stórt herbergi og flísalagt þvottahús/geymslu. Gott háaloft er yfir hluta bílskúrs.
*Allt er nýlegt í hjónaherbergi, fataherbergi og baðherbergi þar inn af.
*Búið er að endurnýja allt í eldhúsi og á baðherbergi.
*Hiti er í gólfum í forstofu og á baðherbergjum.
*Mikil lofthæð er í alrými.
*Flísar eru á gólfi í geymslu/þvottahúsi og opið geymsluloft er þar yfir að hluta.
*Búið er að endurnýja neyslulagnir.
*Innkeyrsla er steypt og með hitalögn.
*Afgirt verönd er á lóð með heitum potti og lóðin er grasilögð.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
s: 420-4000 /863-4495
dori@studlaberg.is