Fasteignamiðlun kynnir eignina Hávegur 58, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0356 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hávegur 58 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0356, birt stærð 235.2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús í hæðum Siglufjarðar með frábæru útsýni. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, 5 svefnherbergjum, baðherbergi, gestasalerni, þvottahúsi, geymslu og bílskúr. Stór timburpallur er bak við eignina með skjólveggjum. Steypt bílaplan er með snjóbræðslu. Eignin stendur í enda botnlangagötu og efst í byggð Siglufjarðar.
Búið er að endurnýja -Gler og hluta af gluggum í eigninni.
-Þak og rennur.
-Rafmagn efri hæðar og hluta neðri hæðar.
-Neysluvatnslagnir og hluta af ofnalögnum/ofna.
-Gólfefni, hurðar, lofta- og veggjaklæðningar.
-Bílastæði steypt með snjóbræðslu og lýsingu.
-Geymsluloft útbúið með aðgang frá palli.
-Timburpallur með skjólveggjum og rafmagn lagt fyrir heitan pott.
Neðri hæð:Forstofa: er parketlögð með ágætis fatahengi.
Svefnherbergi: eru tvö á neðri hæð með parket á gólfi.
Gestasalerni: er með flotuðu gólfi, vask og salerni. Opnanlegur gluggi er til staðar.
Þvottahús: er mjög rúmgott með skápaplássi, vask og sér inngangi.
Geymsla: er ca 27m2 að stærð og er óskráð rými vegna lofthæðar.
Efri hæð: Eldhús: er með hvítum innréttingum og svartri borðplötu. Búrskápur er við enda, innbyggðir 2 ofnar, helluborð og stór vaskur. Eyja er með skúffuplássi og sætum við enda.
Stofa-borðstofa-sjónvarpstofa: liggja saman í opnu rými með eldhúsi. Mikið og fallegt útsýni er úr stórum gluggum í rýminu.
Svefnherbergi: eru 3 á efri hæðinni öll með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er notað sem fataherbergi í dag og er því fyllt skápum með speglahurðum.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, baðkari, og salerni.
Pallur: útgengt er út á timburpall með skjólveggjum á efri hæð. Á palli er tengi fyrir rafmagnspott og kaldan pott. Einnig er afgirt hundasvæði á lóð með hliði á tveimur stöðum.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.