Jason Kristinn, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Falleg 4ra herbergja sérhæð í þríbýlishúsi á eftirsóttum stað við Hávallagötu 13, 101 Reykjavík. Um er að ræða 139 fm íbúð með sérinngangi. Fjögur herbergi, stórt og bjart alrými með stofu og borðstofu, rúmgott eldhús og baðherbergi. Tvennar svalir til suðvesturs og góð dagsbirta.
Einstök eign á rólegum og vinsælum stað í vesturbænum. Arkitektar hússins eru Einar Sveinsson og Sigmundur Halldórsson. Húsið er steinsteypt og er í fúnkis stíl, steinklætt með kvarts og tinnu. Hávallagata liggur efst gatna í sunnaverðri Landakotshæðinni og er húsið við Landakotstún. Hverfið er heilsteypt og rótgróið íbúða- og sendiráðshverfi.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í
forstofu með forstofuherbergi sem gæti nýst sem
svefnherbergi, vinnuherbergi eða gestaherbergi.Eldhús er rúmgott með nýlegri innréttingu með marmara. Gott vinnupláss, eldunareyja með marmara og innfelldri gaseldavél. Ofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými þaðan sem er utangengt á suðvestursvalir, annars vegar frá borðstofu og hins vegar frá stofu.
Baðherbergi er flísalagt með vandaðri innréttingu og innbyggðum blöndunartækjum.
Svefnherbergin eru rúmgóð með góðum skápum með lýsingu.
Gegnheilt eikarparket er á allri íbúðinni. Flísar eru í forstofu, á baði og í eldhúsi.
Sérgeymsla er í kjallara. Sameiginleg þvottaaðstaða fyrir húsið. Epoxy á gólfi.
Stór og fallegur suðvestur garður fylgir eigninni og nýtist vel til útiveru.
Endurbætur og framkvæmdir: Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum:
2021: Skólplagnir endurnýjaðar
2022: Ný gólfefni, baðherbergi endurnýjað, nýjar vatnslagnir, innihurðir, rafmagn og tenglaefni
2023: Sprunguviðgerðir að hluta utanhúss
2024: Ný drenlögn í kringum húsið
2025: Sameign endurbætt (Epoxy sett á gang í kjallara, gang við geymslur og þvottahús)
Glæsileg og vel skipulögð eign á einum vinsælasta stað vesturbæjar Reykjavíkur. Stutt í skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði.
Laus eftir 15. júní, mögulega fyrr.
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.