M2 Fasteignasala kynnir til sölu - 2ja herbergja íbúð á 1. hæð í sex íbúða fjölbýlishúsiEignin Háteigur 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-8310, birt stærð 64.0 fm, merkt 103.
Eignin skiptist í sameiginlega forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, stofu og eitt svefnherbergi ásamt geymslu í kjallara.
* Eignin er laus 1.júní
Anddyri er parketlagt
Eldhús er með parket á gólfi, dökk viðarinnrétting með flísar á milli skápa, eldavél og vifta.
Stofa er með parket á gólfi og hurð út á flísalagðar svalir frá stofu.
Baðherbergi er með flísar á gólfi, þar er nýleg innrétting, baðkar, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og er mjög rúmgott.
Sér geymsla í kjallara ca. 6m².
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
*Forhitari er á miðstöðvarlögn
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.