Eignaland fasteignasala kynnir í einkasölu Hamraberg 40.
Um er að ræða raðhús í skemmtilegum sérbýliskjarna í efra Breiðholti. Húsið er samtals 124.6fm og er á tveimur hæðum. Fjögur svefnherbergi eru á efri hæð og afmarkaður bakgarður með geymsluhúsi.
Húsið hefur verið endurnýjað að hluta (sjá framkvæmdalista neðar í lýsingu)
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is Neðri hæð.Forstofa: Flíslagöð forstofa með fatahengi.
Þvottahús: Innaf forstofu er þvottahús. (mynd vantar)
Gestasalerni: Snyrtilegt og endurnýjað gestasalerni með flísum á gólfi.
Eldhús: Hvítlökkuð innrétting með granít steini á borðum. Flísar á gólfi og aðstaða "skenkur" til að sitja við.
Stofa/Borðstofa: Stofa, borðstofa og sjónvarpshol í einu björtu alrými. Þaðan er útgengt í bakgarðinn og út á sólpallinn.
Efri hæð.Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og parket á gólfi.
Önnur svefnherbergi: Þrjú herbergi, öll rúmgóð og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, bæði veggir og gólf. Snyrtileg innrétting og upphengt salarni. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Geymsla: Gluggalaus geymsla, en nýtist í dag sem skrifstofa (mynd vantar)
Geymsluloft: Geymsluloft er yfir efri hæðinni.
Garður: Snyrtilegur framgarður, þar sem hellulagt er að hluta. Bakgaður er með sólpalli og þar er einnig útihús/geymsla.
Samantekt.
Gott sérbýli á mjög barnvænum stað í Breiðholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Stutt er í mikla náttúrufegurð í Elliðaárdalnum með fallegum gönguleiðum.
Framkvæmdir:2010 - Nýtt parket sett á efri hæð.
2012 - Skipt um eldhúsinnréttingu.
2012 - Baðherbergi á efri hæð endurnýjað.
2015 - Málningarvinna og steypviðgerðavinna að utan.
2019 - Neðri hæð flotuð. Settur gólfhiti. Nýtt parket og flísar.
2019 - Gestasalerni á neðri hæð tekið í gegn.
2019 - LED-lýsing sett í stokk í hluta af stofu.
2021 - Sólpallur byggður og einnig garðskúr c.a. 14fm.
2024 - Efri hæð máluð.
2025 - Skipt um allt gler og gluggalista og þeir gluggar sem voru taldir ónýtir lagfærðir.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.