Nýtt í sölu - Hallgerðargata 19 (Sólborg) - Glæsileg 2ja. herb. íbúð með aukinni lofthæð, sérsmíðuðum innréttingum og svölum til suðurs inn í bakgarð.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilega og vel skipulagða 58,8 fermetra 2ja herbergja íbúð á 3. hæð (304) í nýlegu lyftuhúsi við Hallgerðargötu 19 í Reykjavík. Vandaðar innréttingar úr reyktri eik. Góðar svalir til suðurs sem snúa inn í skjólgóðan bakgarð. Stofa og eldhús mynda eitt alrými með gólfsíðum gluggum til suðurs. Vönduð Siemens Studioline tæki í eldhúsi. Möguleiki er að leigja stæði í bílakjallara fyrir sanngjarnt verð (9.400,- á mánuði). Rafhleðslustöðvar eru í bílakjallara. Sérgeymsla í kjallara sem er 8,3 fermetrar að stærð. Þvottaaðstaða innan íbúðar.
Öll sameign er til fyrirmyndar og afar snyrtileg. Myndavéladyrasími er í húsinu. Flísar á sameiginlegu anddyri og teppi á stigapöllum. Lóðin er snyrtileg með hellulagðri stétt við hús. Hönnuðir byggingarinnar eru THG Arkitektar og Studio Arnhildur Palmadottir.
Frábær staðsetning í næsta nágrenni við alla verslun og þjónustu (Borgartún, Nóatún og Laugalæk). Kaffihús og hárgreiðslustofa í húsinu. Stutt í fallegar göngu- og hjólaleiðir við sundin og Laugardalnum sjálfum (grasagarðurinn, húsdýragarðinn, skautasvellið í laugardal og íþróttasvæði). Íþróttasvæði Þróttar, Laugardalslaug og líkamsræktarstöðvar í næsta nágrenni.
Nánari lýsing:Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa er opin við eldhús. Gluggar eru gólfsíðir til suðurs. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Snúa til suðurs inn í skjólgóðan bakgarð sem snýr að Laugardalnum.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting úr reyktri eik sem nær upp í loft. Siemens bakaraofn, Siemens spansuðuhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Eldhús er opið við stofu og eru gluggar til suðurs. Lýsing undir efri skápum og innfelld lýsing í loftum.
Svefnherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi og góðum skápum úr reyktri eik sem ná upp í loft. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi og hluta veggja. Gólfhiti á baðherbergi. Flísalögð sturta og handklæðaofn. Falleg innrétting við vask og upphengt salerni. Útloftun.
Bílakjallari: Hægt er að leigja stæði fyrir sanngjarnt verð sem er niðurgreitt fyrir íbúa í húsunum (kr. 9.400,- á mánuði).
Sérgeymsla: Er staðsett á jarðhæð sem er 8,3 fermetrar að stærð. Málað gólf, rafmagnstengill og loftræsting.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is