Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Vel skipulögð 89,1 fm. þriggja herbergja íbúð ( íbúð merkt 320 ) á 3. hæð við Hallgerðargötu 11, 105 Reykjavík.Íbúðin er fullbúin með harðparket á gólfum frá Álfaborg að undanskildu baðher... Sýna meira
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Vel skipulögð 89,1 fm. þriggja herbergja íbúð ( íbúð merkt 320 ) á 3. hæð við Hallgerðargötu 11, 105 Reykjavík.Íbúðin er fullbúin með harðparket á gólfum frá Álfaborg að undanskildu baðherbergi, sem er flísalagt með flísum frá Álfaborg, gráum að lit í stærð 30x60.Allar innréttingar eru sérsmíðaðar með ljúflokun á skúffum og skápum. Skápahurðir eru með melamin áferð, ljósar að lit. Borðplötur eru frá Egger, svartar að lit. Eldhúsinnrétting er með tækjum og búnaði frá AEG, spanhelluborði og blástursofni. Háfur er staðsettur yfir eyju, svartur að lit. Fataskápar eru í sama lit og innréttingar. Innihurðir eru hvítar yfirfelldar frá Parka.Sjá má skilalýsingu og nánari upplýsingar inn á heimasíðu verkefnisins: hallgerdargata.is/Smelltu á link til að skoða íbúð í 3-DBókið skoðun hjá Gunnar Sverrir í síma 862-2001 eða með tölvupósti á netfangið Nánar um eign: Hallgerðargata 11. Eignin er þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð matshlutans, merkt 0320, birt stærð 79,7 fm. Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara matshlutans, merkt 0069, birt stærð 9,4 fm. og svalir á þriðju hæð, merktar 0351, stærð 6,9 fm. Birt stærð séreignar er 89,1 fm. Íbúðin er með áskriftarrétt í B flokki í bílastæðishúsi.Um er að ræða vandaðar og vel skipulagðar íbúðir í miðri íbúðarbyggð í nálægð við útvistar- og náttúrusvæðum eins og Laugarnesi og Laugardal. Um er ræða steinsteypt hús, einangruð og klædd að utan með áli. Áhersla er lögð á að brjóta upp útlit húsanna með mismunandi litum og áferð. Sérstök áhersla hefur verið lögð á efnisval, áferðir og vandaðan frágang. Skjólgóður og gróðursæll inngarður skapar svo vettvang fyrir skemmtilegt sameiginlegt svæði íbúa.Afar stutt er í fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og afþreyingu í Laugardal og Borgartúni en þar er úr mörgu að velja fyrir alla aldurshópa. Í göngufæri er svo Laugalækur sem ber sérstakan sjarma með sínum litlu einstöku verslunum og annarri þjónustu. Heilsugæslan Kirkjusandi er í næsta húsi. Ungbarnaleikskóli er í húsinu.Heildarfjöldi bílastæða í sameiginlegri bílageymslu undir húsunum á svæðinu skv. deiluskipulagi á reitum merktum A,B,C, D, E, og F, eru samtals 774 bílastæði.Heildarfjöldi bílastæða sem reitur E ( Þ.e. Hallgerðargata 1, 1A, 11 og 11A ) hefur forgang að, eru 68 bílstæði sem skiptast þannig að verslunar/atvinnurými á reitinum hafa forgang að 11 bílastæðum og íbúðir að 57 bílstæðum.Til að nýta bílastæði þurfa aðilar að gera sérstakan afnotasamning við rekstrafélag bílastæðishússins. Íbúðir eru annars vegar seldar með áskriftarrétt í A flokki, aðrar í áskriftarflokki B. Byggingaraðili á Hallgerðargötu er Reir Verk ehf.Reir Verk ehf. er öflugt byggingarfélag sem vinnur að fjölbreyttum fasteignaverkefnum ásamt því að vinna að ýmsum byggingaverkefnum á eigin vegum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita heildarlausnir í byggingaverkefnum, góða þjónustu og vandaða vöru.Húsin eru hönnuð af Teiknistofa Arkitekta Gylfi Guðjónsson og félagar ehf. Ferill verkfræðistofa ehf. hannaði burðarvirki og lagnir. Lota ehf. sá um bruna- og hljóðhönnun. Raflax sá um raflagna- og lýsingahönnun. Lilja Hákon Filippusdóttir hjá Teiknistofu Arkitekta sá um hönnum lóðar.Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-