Íbúð
Einhæð einbýlishús. Staðsteypt með Nudura einangrunarkubbum. Lofthæð 2,75m (3,3m í stofu). KNX hússtjórnarkerfi, loftskiptikerfi (Systemair), gólfhiti í öllum gólfum. Allir gluggar úr áli með öryggisgleri og sólvarnaragleri. Sérsmíðaðar innréttingar með ekta hnotuspón. Hljóðdempandi dúkar í öllum loftum (nema bílskúr/geymslu).
Stofa
Mjög rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum. Fallegur arinn skiptir alrýminu. Útgönguhurð út í garð.
Eldhús
Vandað stór innrétting með mjög stórri eyju. Gert ráð fyrir steini á eyju. Tæki frá AEG. Miele uppþvottavél. Ísskápur og frystiskápur í innréttingu. Rennihurð út á steypta verönd.
Svefnherbergi
Hjónasvíta með teppi á gólfi, gólfsíðum gluggum, fataherbergi. Útgönguhurð út á verönd. Þrjú barnaherbergi, öll rúmgóð með skápum úr hnotuspón. Eitt með fallegum hornglugga.
Baðherbergi
Baðherbergi inn af hjónasvítu: Flísalagt, sturta með dökku sturtugleri, upphengt salerni. Hurð út á steyptan pall með heitum potti. Gluggi með opnanlegu fagi. Annað baðherbergi: Flísalagt með sturtu (dökkt gler), innrétting með hnotuspón, opnanlegur gluggi.
Þvottahús
Þvottahús með góðri sprautulakkaðri innréttingu. Tenging milli íbúðar og bílskúrs í gegnum þvottahús.
Geymsla
Geymsla inn af bílskúr með flísum á gólfi, opnanlegum glugga.
Bílskúr
Mjög rúmgóður bílskúr (38,4m²) með flísum á gólfi, góðri innréttingu, tveimur útidyrahurðum, stórum glugga. Bílskúrhurð 3,5m breið.
Garður
Stór lóð (3737 m²) með mikið næði. Falleg lýsing utandyra.
Svalir/þak
Yfirbyggð verönd (steypt) með heitum potti. Rennihurðir út úr eldhúsi og stofu. Útgönguhurð úr hjónasvítu.
Önnur herbergi
Forstofa með flísum, fallegum skápum og skúffum, bekk með skúffum. Borðstofa við eldhús með flísum og stórum gólfsíðum gluggum. Sjónvarpshol: Rúmgott með gólfsíðum gluggum, útgönguhurð og stórum glugga til austurs.