Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega neðri sérhæð með sérinngangi við Hagamel í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu/stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð og bílskúr.
Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagða forstofu.
Inn af forstofu er hol með parketi.
Gestasalerni er flísalagt.
Eldhús er með hvítlakkaðri sérsmíðari innréttingu og stein borðplötum ásamt eldhús tækjum frá Siemens með stáláferð.
Borðstofa er björt með parketi á gólfum og útgangi út á svalir en borðstofa og stofa mynda alrými.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfum og fataskápum.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi og innréttingu.
Sérgeymsla er á jarðhæð.
Bílskúr með hita og rafmagni.
Yfirlit yfir framkvæmdir:
Íbúðin var mikið endurnýjuð 2013,
Eldhúsinnrétting sérsmíðuð, sérsmíðaðir fataskápar.
Þvottahús endurnýjað, ný innrétting.
2020-2021 Hús múrviðgert og veggur við bílskúr lagfærður.
2021 Hús málað að utan.
2022 Skipt um járn á þaki.
Skipt um gler og gluggalista.