Fasteignasalan Hvammur – 466-1600 – gunnar@kaupa.is
Hafnarstræti 100 íbúð 204 – vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjöleignarhúsi í miðbæ Akureyrar – stærð 53,5 m²**Íbúðin er í dag í skammtímaleigu og býður eignin upp á góða tekjumöguleika vegna staðsetningar í miðbæ Akureyrar**Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhúskrók, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu í kjallara.
Nánari lýsing:- Anddyri er með flísum á gólfi.
- Eldhúsið er með snyrtilegri L-laga innréttingu og parketi á gólfi sem flæðir inn í anddyri og stofu.
- Stofan er björt með parketi á gólfi og gluggum til austurs.
- Svefnherbergið er með parketi á gólfi og þreföldum fataskáp.
- Baðherbergið er með flísum á gólfi og hvítmáluðum þiljum á veggjum, nýrri hvítri innréttingu, wc, sturtu og tengi fyrir þvottavél.
- Sérgeymsla er í kjallara, skráð 5,1 m² að stærð.
Annað:- Vel skipulögð íbúð í hjarta Akureyrar
- Eignin hefur verið í skammtímaleigu
- Getur selst með húsgögnum
- Nýr ofn og helluborð árið 2024
- Öll máluð að innan árið 2022
- Nýtt parket árið 2022
- Tilvalin til áframhaldandi útleigu eða eigin nota
- Snyrtileg sameign
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.