Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og LANDMARK fasteignamiðlun kynna:Tveggja herbergja íbúð á Selfossi auk rýmis í kjallara. Um er að ræða íbúð á fyrstu hæð, 68,2fm. að stærð en eigninni fylgir einnig herbergi í kjallara, 27,6fm. að stærð og geymsla í kjallara, 6,1fm. að stærð... Sýna meira
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og LANDMARK fasteignamiðlun kynna:Tveggja herbergja íbúð á Selfossi auk rýmis í kjallara. Um er að ræða íbúð á fyrstu hæð, 68,2fm. að stærð en eigninni fylgir einnig herbergi í kjallara, 27,6fm. að stærð og geymsla í kjallara, 6,1fm. að stærð. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign og óskipt bílastæði á lóð. Íbúðin og herbergið eru í útleigu í dag til sitthvors aðilans en leigusamningur um íbúðina rennur út um mánaðamótin jan/feb.Nánari lýsing:Forstofa: Komið er beint inn í alrými íbúðarinnar en þar er forstofuskápur og flísar á gólfi.Stofa: Í beinu framhaldi er rúmgóð og björt stofa / borðstofa en þaðan er útgengt á svalir.Eldhús: Gott eldhús sem er innangengt í beggja megin. Eldhúsinnrétting, vaskur, einnar handar blöndunartæki, helluborð, bakaraofn og gufugleypir, gert er ráð fyrir uppþvottavél. Gott skápapláss í eldhúsi, flísar milli innréttinga.Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með fjórföldum fataskápum.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og innréttingu ásamt sérstöku plássi sem er ætlað fyrir þvottavél og þurrkara.Herbergi í kjallara: Undir íbúðinni er 27,6fm. herbergi sem er í dag í útleigu. Búið er að setja upp eldhúsinnréttingu ásamt baðherbergi með klósetti og sturtuklefa.Geymsla: 6,1fm. geymsla í séreign fylgir eigninni.Allar nánari upplýsingar veitir:Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarPanta FRÍTT söluverðmat