Eignin er *** SELD*** og er í fjármögnunarferliTrausti fasteignasala kynnir eignina Háaleitisbraut 30, 108 Reykjavík. Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð með bílskúr á besta stað við Háaleitisbraut, á annarri hæð til hægri, í Sigvaldablokkinni. Nánari upplýsingar veita Ragnar Magnús Einarsson, aðs... Sýna meira
Eignin er *** SELD*** og er í fjármögnunarferliTrausti fasteignasala kynnir eignina Háaleitisbraut 30, 108 Reykjavík. Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð með bílskúr á besta stað við Háaleitisbraut, á annarri hæð til hægri, í Sigvaldablokkinni. Nánari upplýsingar veita Ragnar Magnús Einarsson, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 699-8282 eða , Hallgrímur Hólmsteinsson,aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 896-6020 eða og Kristján Baldursson hdl.og lgfs í .Eignin Háaleitisbraut 30 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-4096, birt stærð 133.3 fm. Samkvæmt þjóðskrá er íbúðin skráð 112,4 fm og bílskúrinn 20,9 fm.Nánari lýsing eignar:Gengið er inn í rúmgott parketlagt anddyri, þar á vinstri hönd er stór parketlögð stofa með borðstofu. Inn af borðstofu er gengið inn í eldhús með flísum á gólfi og inn af eldhúsi er flísalagt búr/þvottahús. Eldhúsinnrétting þarfnast viðhalds.Frá borðstofu er útgengt á snyrtilegar rúmgóðar svalir.Á hægri hönd frá anddyri er svefnálma með harmonnikuhurð sem aðskilur svefnherbergin frá öðrum hlutum íbúðar.Svefnálman samanstendur af þremur svefnherbergjum og baðherbergi með upprunalegum flísum og baðkari með sturtuaðstöðu.Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með stórum fataskápum á sitthvora hönd.Íbúðinni fylgir bílskúr og geymsla.Í sameign eru hjóla- og vagnageymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi.Eignin þarfnast viðhalds og vakin er athygli á því að seljendur hafa ekki búið í eigninni og vita því ekki um ástand hennar. Kaupendur eru því hvattir til að skoða eignina vel og fá jafnvel til þess sérfræðinga í húsaskoðun. Nánari upplýsingar veita Ragnar Magnús Einarsson, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 699-8282 eða , Hallgrímur Hólmsteinsson,aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 896-6020 eða og Kristján Baldursson hdl.og lgfs í .Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.