Háborg og Þórunn Pálsdóttir, lgf, s. 773-6000, thorunn@haborg.is, kynna Háaleitisbraut 18, íbúð 102 bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð (1 HH, gengið hálfa hæð upp) ásamt bílskúr
Einstaklega vel skipulögð eign á eftirsóttum stað í grónu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og miðborgina.
Samkvæmt skráningu HMS er heildarstærð eignarinnar 135,8 fm, þar af er íbúðin 105,6 fm og sérgeymsla í kjallara 5,2 fm. Auk þess 25 fm bílskúr á lóð, með lögnum fyrir rafhleðslustöð.Nánari lýsing
Íbúðin er sérlega vel skipulögð, enda var húsið var hannað af Gísla Halldórssyni arkitekt, einum þekktasta arkitekt Íslands á 20. öld.
Komið er inn í rúmgott anddyri með góðu skápaplássi og nýlegum skápum. Anddyri opnast í bjart og opið rými með stórum gluggaflötum og útgengi á vestursvalir. Eldhús er vel skipulagt og smekklega endurnýjað að hluta þar sem heillandi upprunalegir efri skápar fá að njóta sín. Bjartur eldhúskrókur.
Svefnherbergin eru þrjú, rúmgott hjónaherbergi með nýlegum góðum skápum og tvö önnur góð herbergi. Baðherbergið er rúmgott og vel staðsett miðsvæðis í íbúðinni. Það er með sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og tveimur opnanlegum gluggum. Vandað harðparket frá árinu 2016 er á allri íbúðinni nema baðherbergi sem er flíslalagt.
Sérgeymsla er í kjallara hússins og bílskúrinn er innst til hægri á lóðinni er með rafmagni og hita og lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöð.
Í sameign í kjallara er jafnframt hjólageymsla.
Vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð með bílskúr á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórunn Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali
s:773-6000 og thorunn@haborg.is