Eignamiðlun kynnir:Vel hannað, frábærlega staðsett parhús á tveimur hæðum, með góðu útsýni. Samtals birt stærð hússins er 237,5 fermetrar, neðri hæð skráð 103,5 fermetrar og efri hæð skráð 106,7 fermetrar auk 27,3 fermetra bílskúrs og yfirbyggðra svala. Til viðbótar er óskráð rými undir bílskúr sem ... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Vel hannað, frábærlega staðsett parhús á tveimur hæðum, með góðu útsýni. Samtals birt stærð hússins er 237,5 fermetrar, neðri hæð skráð 103,5 fermetrar og efri hæð skráð 106,7 fermetrar auk 27,3 fermetra bílskúrs og yfirbyggðra svala. Til viðbótar er óskráð rými undir bílskúr sem mögulega mætti opna og gera hluta af húsinu. Mikil lofthæð er í stofum, stórir og bjartir gluggar ásamt arni. Stór hornlóð, stórir sólpallar til suðurs.*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit eignarinnar*Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða sem einnig sýnir eignina. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.Góð aðkoma er að húsinu með stóru hellulögðu bílastæði og góðu rými fyrir 2-3 bíla. Hleðslustöð á bílskúrnum.Gengið er inn í rúmgóða forstofu hússins, þar sem er eitt herbergi til vinstri og snyrting til hægri. Úr forstofu er gengið í hol þar sem stigi til neðri hæðar er til hægri, eldhús til vinstri og stofur framundan. Dökkgráar steinflísar eru á gólfi í forstofu, snyrtingu, forstofuherbergi, holi og eldhúsi. Fataskápur er í forstofu.Í holi aðskilur veggur úr hleðlsugleri eldhúsið frá holinu, auk þess sem loft yfir eldhúsi niðurtekið, en mikil lofthæð er að öðru leiti á efri hæðinni. Eldhúsið er bjart og skemmtilegt, með stórum glugga, góðu skápa- og vinnuplássi, stórum tvöföldum ísskáp, eldunareyju með viftu yfir og rennihurð til borðstofu. Auðvelt er að opna eldhúsið meira en nú er, ef vilji er til. Borðstofan er björt, með gluggum á tvo vegu og opin til stofu. Úr borstofu eru dyr út á stórar svalir til austurs og suður. Svalirnar eru yfirbyggðar með vönduðum hætti og nýtast að sögn afar vel allt árið.Gengið er niður tvær tröppur úr holi og borðstofu til stofu. Stofan er einstaklega vistleg og björt, með stórum gluggum til suðurs, mikilli lofthæð, arni og gegnheilu parketi á gólfi. Gott útsýni er úr stofunni. Stofa borðstofa og eldhús eru sérlega björt og vel heppnuð rými með góðri tenginu og opnun mill rýma.Stigi til neðri hæðar er úr holi. Á neðri hæð eru þrjú rúmgóð herbergi, fjölskyldurými, stórt baðherbergi, geymsla og þvottahús innaf geymslu. Þess má geta að til viðbótar mætti opna inní lokað rými undir bílskúr hússins sem yrði þá hluti af neðri hæðinni, en að sögn hafa eigendur hins hluta parhússins farið í slíka framkvæmd. Þegar komið er niður stigann er fataherbergi til vinstri. Rúmgott þvotthús er innaf fataherbergi, með innréttingum og dyrum út á lóð. Andspænis stiga eru baðherbergi og minna svefnherbergi. Baðherbergið er nýlega endurgert, með flísum á gólfi, fallegri innréttingu og þreplaus sturtuklefi með gleri.Gengið er niður tvö þrep í fjölskyldurýmið, þar sem hjónaherbergið er til hægri, herbergi til vinstri og tvölfaldar dyr út á stóra sólpalla til suðurs. Svefnherbergin eru öll rúmgóð og björt. Stór fataskápur er á heilum vegg í hjónaherbergi, minni fataskápur í öðru herberginu og stórt fatahengi í geymslunni. Á allri neðri hæðinni er fallegt viðarparket.Í garði til suðurs eru stórir sólpallar með heitum potti og skjólveggjum. Frábær aðstaða fyrir grill og garðveislur.Bílskúrinn er 27,3 fermetrar, með geymslulofti að hluta.Vel hannað fjölskylduhús sem nýtist mjög vel, frábær aðstaða, stutt í þjónustu og enn styttra á golfvöllinn í Setberginu.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook