***** Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun ******Gimli fasteignasala kynnir: Björt og vel skipulögð 68,2 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með yfirbyggðum svölum í þriggja hæða fjölbýlishúsi. Stutt er í alla helstu þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Eva Rós Baldursdóttir, aðstoðarmaður fasteigna... Sýna meira
***** Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun ******Gimli fasteignasala kynnir: Björt og vel skipulögð 68,2 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með yfirbyggðum svölum í þriggja hæða fjölbýlishúsi. Stutt er í alla helstu þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Eva Rós Baldursdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 824-3890, milli kl 9:00 og 19:00 alla virka daga eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á , og/eða Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, tp: NÁNARI LÝSING:Anddyri/forstofa/hol: Gengið er inn í hol með nýlegum flísum á gólfi.Eldhús: Eldhúsið er vel skipulagt með nýlegri innréttingu og tækjum, opið inn í stofu.Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa með útgengi á yfirbyggðar snyrtilegar svalir.Svefnherbergi : Rúmgott svefnherbergi með skápum.Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluti veggja, baðkar með sturtuaðstöðu, vaskur í innréttingu, speglaskápur og opinn veggskápur.Geymsla: Er í kjallara (5,8 fm) og er hún inní fermetratölu íbúðarinnar.Í kjallara er einnig sameiginleg hjólageymsla og þvottahús með sameiginlegum tækjum.Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði.Húsið er klætt að utan og er viðhaldslétt. Niðurlag: Rúmgóð 2ja herbergja íbúð, stutt í alla þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Eva Rós Baldursdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 824-3890, milli kl 9:00 og 19:00 alla virka daga eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til , og/eða Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, tp: Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.