GUNNARSHOLT LÓÐ 4. Um er að ræða 55,5 fm sumarhús staðsett á 300 fm leigulóð í landi Gunnarsholts á Rangárvöllum. Húsið var flutt á staðinn árið 2000, en óvíst er um upprunalegt byggingarár. Húsið er byggt úr timbri og stendur á steyptum bitum. Ytra byrði er klætt með standandi timburklæðningu. Húsið telur: Anddyri með spónaparketi á gólfi. Tvö svefnherbergi með spónaparketi á gólfum. Salerni með parketi á gólfi. Sambyggt eldhús og stofu með dúk á gólfi og lítilli innréttingu. Við húsið er verönd úr timbri. Eignin þarfnast viðhalds og endurbóta.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.