EV fasteignasala kynnir: Vel staðsett 108,5 fm íbúð með rúmgóðum palli til suðurs. Húsið hefur fengið gott viðhald. Íbúðin er núna með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum en auðvelt er að bæta við þriðja herberginu út frá skipulagi. Parket er á gólfum ásamt flísum. Rúmgott eldhús með fallegum glugga og góðu plássi fyrir eldhúsborð. Baðherbergi er með bæði sturtu og baðkari ásamt glugga. Þvottahús og geymsla er innan íbúðar. Sérmerkt bílastæði á lóð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á sömu hæð og íbúðin ásamt sameiginlegu geymsluplássi í rislofti hússins. Húsið var málað að utan sumarið 2022 ásamt þaki og þakktanti. Einnig var farið yfir glugga og gler og endurnýjað það sem þurfti.NÁNARI LÝSING:Anddyri: Komið er inn í flísalagt anddyri/gang.
Herbergi I: Rúmgott parketlagt herbergi með góðum fataskáp. Dyr út á hellulagðan reit fyrir framan herbergi.
Herbergi II: Rúmgott parketlagt herbergi.
Sjónvarpsstofa/Herbergi III: Parketlagt inn af stofu. Hægt að breyta í þriðja svefnherbergið.
Eldhús: Rúmgott flísalagt eldhús með fallegum glugga og plássi fyrir gott eldhúsborð.
Stofa & borðstofa: Parketlögð, stór og björt stofa/borðstofa með aðgengi að sólríkri verönd sem snýr til suðurs.
Þvottahús/Geymsla: Flísalagt með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla er í óskiptu rými ásamt þvottahúsi.
Pallur: Rúmgóður sérafnotapallur með skjólveggjum, sólríkur í suðurátt.
Frábærlega staðsett eign með góðum útivistarsvæðum, leik-, grunn- og framhaldsskólum og allri almennri þjónustu í næsta nágrenni. Gott aðgengi er að íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 840 0314, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til einar@provobis.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.