Fallegt einbýlishús innst í lokaðri götu við grænan trefil á eftirsóttum stað í Fossvoginum. Húsið er skráð um 259 fm. en jafn stór óskráður kjallari er undir öllu húsinu. Innangengt er í hann úr bílskúr en lítið mál er að gera sér inngang og stækka glugga ef vill. Húsið er barn síns tíma en bíður upp á frábæra möguleika fyrir þá sem vilja breyta og bæta. Á aðalhæð eru m.a. fjögur til fimm svefnherbergi. Húsið stendur á fallegri stórri lóð.
Komið er inn í flísalagða forstofu, skápur. Innaf er gesta snyrting. Þvottahús er flísalagt, innréttng. Hol, stofa og borðstofa eru parketlagðar, arinn. Eldhús er parketlagt, eldri innrétting, borðkrókur. Herbergjagangur er parketlagður, loftgluggar setja skemmtilegan svip á rýmið. Á herbergjagangi eru þrjú parketlögð barna herbergi ásamt hjónaherbergi sem er með fataherbergi innaf. Útgangur er á verönd úr hjónaherbergi og einu barnaherbergjanna. Baðherbergi er flísalagt, baðkar og sturta. Geymsla/herbergi er parketlögð og er innangengt í bílskúr.
Í kjallara er gott aðgengi að öllum lögnum á efri hæð og lítið mál að endurnýja, breyta og bæta að vild. Í kjallara er góð lofthæð og var útbúin vísir að íbúð þar, eldhús, baðherbergi, stofa og herbergi.