LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali –
823-2800 / monika@landmark.is kynna:Virkilega fallegt og mikið endurnýjað fjögurra til fimm herbergja 129,8 fm endaraðhús á tveimur hæðum við Grundarhús 26 í Reykjavík. Húsið er á næstu lóð við Húsaskóla og í örstuttu göngufæri við Grafarvogslaug og íþróttamiðstöðina við Dalhús. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu auk rishæðar með stigaaðgengi. Gestasalerni er á aðalhæð og rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu á efri hæð. Lóðin er með skjólgóðri verönd í suður og vestur. Starfandi er húsfélag í lengjunni með framkvæmdasjóði. Afhending getur orðið nokkuð fljótt. Sjá viðhaldssögu neðar í lýsingu. Aðalhæð skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borðstofu og gestasalerni.
Önnur hæð skiptist í hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Aðgengi að rishæð úr holi.
Birt stærð íbúðarrýmis er 129,8 fm og þar af er rishæðin 9,3 fm.
✅ Fallegt og mikið endurnýjað endaraðhús
✅ Stórt og skjólsælt útsvæði með afgirtri verönd
✅ Rúmgott baðherbergi auk gestasalernis
✅ Tvö sérmerkt bílastæði fyrir utan með rafbílatengi
✅ Frábær staðsetning örstutt frá skóla, sundlaug og íþróttamiðstöðNánari lýsingForstofa: Flísar á gólfi, innaf forstofu er opið að rými fyrir innan með góðum fataskápum.
Alrými: Bjart rými með stofu og borðstofu auk eldhúss, harðparket á gólfi og gólfhiti. Úr stofu er útgengi á baklóð.
Eldhús: Hvít innrétting frá HTH, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar og stórt helluborð, harðparket á gólfi.
Gestasalerni: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðinnréttingu og speglaskáp.
Svefnherbergi: Þrjú talsins, öll á efri hæð hússins, stór fataskápur í hjónaherbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf að mestu með upphengdu salerni, sturtu með innbyggðum tækjum, baðinnréttingu, spegli með baklýsingu, vegghendum skáp, þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og handklæðaofn á vegg.
Rishæð: Harðparket á gólfi og tveir þakgluggar.
Baklóð: Virkilega skjólsæl mót suðri og vestri með afgirtri verönd og geymsluskúr.
Viðhaldssaga:
2012. Háaloft innréttað sem skrifstofa/aukaherbergi og harðparket lagt.
2013. Garður og pallur teiknaður af Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt. Garðurinn tekinn í gegn, skipt um undirlag og jarðveg og gróður endurnýjaður. Nýr sólpallur, útigeymsla og skjólveggur smíðaður. Stétt að framan hellulögð og hitakerfi lagt í stétt.
2018 vor. Efri hæð tekin í gegn. Skipt um þakglugga, Velux gluggar úr Byko. Harðparket frá Birgisson lagt á herbergi og hol. Skipt um fataskáp í hjónaherbergi (IKEA).
Baðherbergi endurnýjað, gólf og veggir flísalagðir með flísum frá Vídd, walk-in sturta útbúin, innbyggt salerni frá Tengi, innréttingar og handlaug frá Ikea. Þvottaaðstaða útbúin með innréttingum frá Axis.
2018 haust. Neðri hæð tekin í gegn, gólfhitakerfi frá Grundfos sett í gólf og harðparket frá Birgisson lagt á stofu, borðstofu og eldhús. Skipt um eldhúsinnréttingu (frá HTH), innbyggð AEG uppþvottavél, innbyggður Siemens ísskápur. Tveir ofnar frá Siemens, stærri ofninn er með blásturs- og gufuofn og minni er bæði örbylgjuofn og blástursofn. Báðir wi-fi tengdir með innbyggðum kjöthitamæli og hægt stýra í appi.
Baðherbergi endurnýjað, gólf og veggir flísalagðir með flísum frá Vídd. Innbyggt salerni frá Tengi og innrétting og handlaug frá IKEA.
Forstofa flísaglögð með flísum frá Vídd. Hurð færð og forstofuherbergi með skápum útbúið.
Nýr stigi milli hæða sérsmíðaður úr smíðastáli og parketlagður.
2019 Skipt um gler í öllum gluggum (nema þakgluggunum sem settir voru nýir 2018) og gluggar yfirfarnir.
2023 Rafmagnshleðslustöð sett upp við bílastæði.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 /
monika@landmark.isJúlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 /
julius@landmark.isLáttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat