Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Grundargötu 9 á Drangsnesi. Þriggja herbergja raðhús á einni hæð, byggt árið 2015. Eignin er 83 fm og stendur á rólegum og fjölskylduvænum stað með fallegu útsýni til sjávar. Stutt er í sundlaug, náttúru og aðra þjónustu.
Skipulag: Forstofa, stofa og eldhús í opnu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymsla.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Inn af forstofu er rúmgóð geymsla sem býður upp á gott geymslupláss.
Stofa og eldhús mynda bjart og opið alrými með aukinni lofthæð sem skapar fallega rýmiskennd og góða birtu. Stofan er með parketi á gólfi og útgengi út á timburpall.
Eldhús er með eikarinnréttingu, góðu skápaplássi bæði ofan og neðan borðplötu og fallegu útsýni til sjávar úr eldhúsglugga.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handlaug í innréttingu, handklæðaofni og þvottaaðstöðu.
Við húsið er timburpallur.
Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.isForsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.