Eignin er seld og er í fjármögnunarferliFasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og þó nokkuð mikið endurnýjað 182,5 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum á 186,8 fermetra eignarlóð á rólegum stað á baklóð við Grettisgötu 6a í Reykjavík. Fasteignamat eignarinnar fyrir ... Sýna meira
Eignin er seld og er í fjármögnunarferliFasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt og þó nokkuð mikið endurnýjað 182,5 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum á 186,8 fermetra eignarlóð á rólegum stað á baklóð við Grettisgötu 6a í Reykjavík. Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2024 er 117.650.000.-Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað hið innra og ytra skv. upplýsingum frá seljendum:- Þakjárn, þakpappi, þaksperrur, þakborð og einangrun voru endurnýjuð nýlega- Klóaklagnir undir húsi og út í götu eru nýlegar og lagðar úr plasti- Drenlagnir umhverfis húsið eru mjög nýlegar- Rafmagnstafla er nýleg og raflagnir í húsinu að mestu leyti- Neysluvatnslagnir í húsinu eru nýlegar og nýr þrýstijafnari er á hitagrind- Gler og gluggar hafa verið endurnýjuð að hluta og útidyrahurðir Einstök staðsetning í miðbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og allt það mannlíf sem borgin hefur uppá að bjóða. Eignin er á tveimur hæðum og skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, 3-4 svefnherbergi, tómstundarými, 2 baðherbergi og þvottahús. Gólfefni hússins eru að mestu upprunalegar timburfjalir sem búið er að pússa upp og haldið hefur verið í gamla stílinn í húsinu.Bókið einkatíma fyrir skoðun eignarinnar á netfanginu Nánari lýsing eignarinnar:Efri hæð hússins er 91,1 fermetri að stærð, er með aukinni lofthæð og stórum og fallegum gluggum og skiptist þannig:Forstofa, furugólfborð og fatahengi.Hol, furugólfborð.Baðherbergi, með glugga og mjög rúmgott. Furugólfborð og frísatandandi baðkar á miðju gólfi. Stofa, stór og björt og lögð furugólfborðum.Eldhús, stórt og bjart með góðum gluggum og útgengi á lóð til suðausturs. Fallegar nýlegar svartar sprautulakkaðar innréttingar með gashelluborði og nýlegum Siemens ofni. Góð borðaðstaða er í eldhúsi.Borðstofa, opin við eldhús að hluta, furugólfborð. Tveir viðarstigar eru á milli efri og neðri hæðar. Annar stiginn er úr holi og liggur niður í fjölskyldurými en hinn er úr eldhúsi og liggur niður í þvottaherbergi. Neðri hæð hússins er 91,4 fermetrar að stærð, er með sérinngangi af lóð og skiptist þannig:Sjónvarpsstofa, furugólfborð, gluggar til suðurs og fallegir viðarbitar í loftum.Barnaherbergi I, rúmgott og með furugólfborðum, gluggi til vesturs.Barnaherbergi II, rúmgott og með furugólfborðum, gluggar til suðurs og vesturs.Gangur, innaf sjónvarpsstofu er linoleumdúklagður og með útgengi á lóð.Geymsla, með glugga, um 8 fermetrar að stærð.Hjónaherbergi, stórt og linoleumdúklagt.Þvottaherbergi, dúklagt og með útgengi á lóð.Baðherbergi, dúklagt gólf og flísalagðir veggir. Stór flísalögð sturta með innbyggðum sturtuhausum í loft.Tiltölulega auðvelt er að breyta innra skipulagi hússins og mætti t.d. fjölga svefnherbergjum um amk 1 á efri hæð og hugsanlega breyta geymslu á neðri hæð í svefnherbergi þannig að þá væru 5 svefnherbergi í húsinu.Lóðin er 186,6 fermetra eignarlóð, og er baklóð sem er mjög rúmt um og nýtur sólar á lóðinni frá morgni til kvölds. Austan við húsið væri hægt að setja upp stóra verönd útaf eldhúsi.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu