GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu bjarta og hlýlega 2-3 herbergja íbúð með mjög stórri suður verönd í fallegu fjölbýlishúsi á eftirsóttum og vinsælum stað í Vesturbænum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla, íþróttasvæði KR og sundlaug Vesturbæjar. Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða íbúð með 2 svefnherbergjum, rúmgóðu opnu eldhúsi og fallegri stofu. Mörg sameiginleg bílastæði eru við húsið. Bókið einkaskoðun: Unnur s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is**Íbúðin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.Nánari lýsing:
Komið er inn í opna forstofu með flísum á gólfi.
Eldhús er opið með hvítri upprunalegri innréttingu, ljósri borðplötu og góðu skápaplássi. Hvítar flísar á gólfi sem aðeins er kvarnað upp úr.
Stofa/borðstofa er björt og hlýleg með stórum gluggum og parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra suður-verönd.
Herbergi I er parketlagt, með góðu skápaplássi og fallegum gluggum.
Herbergi II er með parketi á gólfi. Var áður hluti af stofu.
Baðherbergið er með sturtuklefa, flísum á gólfi og veggjum að hluta.
Rúmgóð geymsla/þvottahús er innan íbúðar.
Í sameing er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Birt stærð íbúðar skv. FMR er 68,8fm.
Snyrtileg sameign með flísum í andyri og teppi á stigagangi. Alls eru 8 íbúðir í stigaganginum, 2 á hverri hæð.
Fyrir framan húsið eru fjölmörg sameiginleg bílastæði. Þetta er falleg íbúð á rólegum og fjölskylduvænum stað í Vesturbænum
Húsgögn eru sett inn á nokkrar myndir með aðstoð gervigreindar. Þetta er gert til að aðstoða áhugasama kaupendur við að sjá fyrir sér möguleika sem íbúðin býður upp á. Íbúðin var mynduð án innbús.
Eigandi hefur ekki búið í íbúðinni.
**Athugið að innra skipulag eignar er ekki í samræmi við útgefnar teikningar. Íbúðin er skráð 2 herbergja en búið er að bæta við auka svefnherbergi í stofu.
**Athugið að seljandi tengist starfsmanni Garðatorgs eignamiðlunar.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, s:8660507 eða unnur@gardatorg.isGARÐATORG EIGNAMIÐLUN ER STAÐSETT Á LYNGÁSI 11 Í GARÐABÆ.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Garðatorg eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð