Grandavegur 4 - Reykjavík
STOFAN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Bjarta og fallega 3 herbergja íbúð á 1.hæð við Grandaveg 4, Reykjavík.
Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti og er skráð samtals 99,7 fm skv. HMS.Tvö rúmgóð herbergi
Fallegt og bjart eldhús sem hefur verið endurnýjað
Ný innrétting og handlaug á baðherbergi
Flotað gólf og nýlegt harðparket á gangi og herbergjum
Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðirKomið er inn í
forstofu/gang, flotað gólf.
Eldhús er bjart og fallegt með rúmgóðum borðkrók. Falleg innrétting með bakarofni í vinnuhæð ásamt örbylgjuofni, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, flotað gólf.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum glugga, flotað gólf.
Hjónaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi. Útgengt á svalir frá herbergi.
Barnaherbergi er rúmgott með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, falleg innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Sérgeymsla í sameign á jarhæð sem er 7,7 fm.
Sameiginlegt
þvottahús í sameign á jarðhæð .þar sem hver og ein íbúð hefur sína þvottavél.
Sameiginleg
hjólageymsla einnig í sameign.
Stór og gróinn garður við húsið með trampólíni sem er í sameign íbúa.
Endurbætur og framkvæmdir á ytra byrði skv.seljanda:
Húsið málað - 2017
Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir í húsinu á síðustu árum ásamt svalahurð
Fóðrun á fráveitulögnum undir kjallara og út í götu. Bætt við brunni fyrir framan hús - 2014
Endurbætur innan ibúðar skv.seljanda
Gólf flotað og sprautað undir plötu í stofu og eldhúsi - 2017
Parket lagt í svefnálmu - 2017
Rafmagn í eldhúsi sett í sér töflu - 2017
Innrétting á baði endurnýjuð ásamt blöndunartækjum í vaski - 2025
Gluggar málaðir og lakkaðir að innan - 2026
Þetta er björt og falleg eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem skólar, verslanir og helsta þjónusta eru í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.