Valhöll kynnir fallega og bjarta íbúð á 4. hæð (efstu hæð) í hjarta vesturbæjar Reykjavíkur. Fallegt útstýni út á sjó til suðurs og vesturs.
Íbúðin, sem er á tveimur hæðum, skiptist í forstofu / hol, eldhús, stofu / borðstofu, þvottahús, geymslu, svefnherbergi og opið risherbergi. Mikil lofhæð í stofu og bjartir gluggar sem gera íbúðina mjög skemmtilega.
Íbúðin er skráð 89,6 fm á stærð.
Þetta er falleg íbúð á góðum stað sem er vert að skoða.Nánari lýsing:Forstofa / hol: forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús: fallegt eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi.
Þvottahús: þvottahúsið er innan íbúðar inn af eldhúsi.
Stofa / borðstofa: samliggjandi stofa og borðstofa með mikilli lofthæð og fallegu útsýni til suðurs og vesturs, sést til Keilis, suðurnesja og út á sjó. Úr stofu er úgengi á suður vestur svalir.
Baðherbergi: baðherbergið með hvítri innréttingu, baðkari með sturtu í, upphengdu salerni og flísum á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er með fataskápum og rými undir súð, góðri lofthæð og parketi á gólfi.
Geymslur: Lítil geymsla er innan íbúðar innaf holi og svo er geymslurými í rislofti fyrir ofan þvottahús.
Rishæð: Úr holinu er gengið upp í opið risherbergi. Þar er gott rými undir súð með þakglugga og parketi á gólfi sem er í dag nýtt sem skrifstofa / sjónvarpsherbergi. Gólflötur rýmisins er um 11,5 fm.
Sameign: Snyrtileg teppalögð sameign. Í stigaganginum eru 8 íbúðir.
Enddurbætur á eign samkvæmt seljendum:Innan íbúðar:
2021: Íbúðin öll máluð. allar hurðar sprautaðar hvítar. og allar gluggakistur málaðar hvítar. Sett nýtt parket og gólflista. Nýr fataskápur settur í svefnherbergi. Ný skápainnrétting (innbyggð) sett upp á efri hæð (skrifstofu). Þvottaherbergi og geymsla dúklögð. Ný gluggakista smíðuð og sett hjá svalaglugga/svalahurð. Nýjar hillueiningar settar í þvottahús og hleri fyrir háaloftsgeymslu.
2023: Nýtt gler sett í þakglugga.
Árið 2025: Svefnherbergi málað. Ný innbyggð ljós sett í forstofu og eldhús. Ný uppþvottavél
Hús að utan:2023: Húsið múrviðgert að utan. þó enn eigi eftir að mála eftir viðgerðirnar, múrviðgerðir hafa verið sílanbornar. Þá var einnig endurnýjað töluvert af gluggum og gleri í húsinu.
Hússjóður:Húsgjöld eru í dag 22.127 kr. á mánúði.
Nánari upplýsingar veitir:
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-19319 eða á netfangið oskar@valholl.isSnorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699 4407 eða á netfangið snorribs@valholl.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) og 0,4% fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar samkvæmt gjaldskrá lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.