Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt 4ja herbergja endaraðhús við Gráhellu á Selfossi. Eignin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í alrými, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og geymsla. Lóðin er gróinn með grasflöt og malbikað bílaplan.
Nánari lýsing: Komið er inn á anddyri með harðparketi og fataskápum. Eldhús og stofa mynda alrými með harðparketi og útgangi út á verönd á baklóð. Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Barnaherbergin eru tvö, bæði með harðparketi. Hjónaherbergi er með harðparketi. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði