HÚS fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Gráhella 57. Fjögurra herbergja 91,7 fm nýlegt raðhús með góðu innra skipulagi.Húsið sem er timburhús er klætt með viðhaldsléttri klæðningu og standandi viðarklæðningu. Malbikuð innkeyrsla. Opið svæði er bakvið húsið.
Bókið einkasýningu hjá fasteignasala.Íbúðin er laus til afhendingar í sumar skv nánara samkomulagi.Innra skipulag. Flísalögð
forstofa með fatahengi.
Hol/gangur. Tvö
barnaherbergi með harðparketi. Í opnu rými er
eldhús, borðstofa og stofa með útgengt á bráðabirgða
sólpall og litla grasflöt. Eldhúsinnrétting með eyju og Electrolux tækjum. Harðparket er á gólfum.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergi flísalagt með opinni sturtu með glervegg, innrétting, handklæðaofni, tengi fyrir þvottavél og þurrkari í innréttingu. Rúmgóð
geymsla er innan íbúðar.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið einkaskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.