LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Um er að ræða nýlegt parhús ásamt innbyggðum bílskúr á tveimur hæðum við Grænatún 20A í Kópavoginum. Birt stærð skv. HMS: neðri hæðin er 76,4 fm, efri hæðin er 63,4 fm og bílskúrinn 24,5 fm eða samtals: 164,3 fm.
Mjög gott skipulag - aukin lofthæð - gólfhiti - tvö baðherbergi - yfirbyggð verönd.
Nánari lýsing eignar neðri hæðar: Komið er inn í mjög rúmgóða
forstofu, stór fataskápur. Frá forstofu tekur við parketlagður
gangur. Á neðri hæðinni er
snyrting með upphengdu salerni, útgengt út á lóð. Innaf gangi er
þvottahús með innréttingu með miklu skápaplássi og hillum og innaf þvottahúsinu er flísalagður
bílskúr sem er að hluta til nýttur undir herbergi, sjálfvirkur hurðaopnari.
Sjónvarpsherbergi með útgangi út á verönd. Mjög fallegt
eldhús með glæsilegri innréttingu frá Fríform sem nær alveg upp í loft, mjög stór eyja úr kvartstein. Parketlögð
borðstofa. Frá þessu rými er gengið út á yfirbyggða verönd sem er að sögn seljanda um 10 fm og í því rými er gólfhiti og þaðan er unnt að ganga út á verönd og þaðan út í bakgarð.
Nánari lýsing efri hæðar: Teppalagður stigi upp á efri hæðina og þar er komið inn á parketlagðan
gang. Mjög rúmgóð
þrjú svefnherbergi og er gengið út á svalir frá tveimur herbergjanna. Á svölunum sem snúa til suður er heitur pottur. Flísalagt stórt
baðherbergi með marmara flísum á veggjum, neðri skápur, Walk-in sturta, upphengt salerni og gluggi. Útgengt frá baðherbergi.
Gólfefni: parket og flísar að mestu á gólfum fyrir utan stiga á milli hæða en þar eru teppi.
Arkitekt hússins er Einar V. Tryggvason arkitekt.
Húsið er vel staðsett í vinsælu hverfi á grónum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslanir ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvogsdalnum.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.isUmsagnir viðskiptavina HÉRFylgdu mér á FacebookFylgdu mér á InstagramPantaðu
FRÍTT söluverðmat á
www.frittsoluverdmat.is Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat