Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu Grænamörk 2a, íbúð 101, Selfossi.
Snyrtileg og vel um gengin 81,4 fm endaíbúð í raðhúsi sem byggt var árið 2004. Húsið er fyrir 50 ára og eldri. Virkilega gott hús - frábær staðsetning á Selfossi. Forstofa er flísalögð og inn af forstofu er þvottahús sem er flísalagt. Inn af þvottahúsi er flísalögð geymsla. Eitt rúmgott parketlagt svefnherbergi með stórum skápum og útgengi á baklóð.
Flísalagt baðherbergi m/eikarinnréttingu, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Í opnu og björtu rými er eldhús, stofa og borðstofa. Eldhúsinnrétting er eikarinnrétting m/keramikhelluborði, Siemens tæki. Yfirfelldar eikarinnihurðir. Innfelld halogenlýsing er í eldhúsi og stofu. Hiti er í gólfum og eru hitastýringar í hverju rými. Húsið er klætt með álklæðingu. Ál/tré gluggar.
Malbikað bílaplan og hellulagðar stéttar við húsið og timbursólpallur framan við húsið. Baklóð er hellulögð.
Falleg íbúð og vel umgengin, á góðum stað á Selfossi.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.