PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt fimm herbergja einbýlishús með bílskúr.** Auðvelt að gera litla auka íbúð í hluta neðri hæðar.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi.Forstofusalerni með flísum á gólfi. Stílhrein innrétting og upphengt salerni.Hol með flísum á gólfi, þar er fataská...
Sýna meira
PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt fimm herbergja einbýlishús með bílskúr.** Auðvelt að gera litla auka íbúð í hluta neðri hæðar.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi.Forstofusalerni með flísum á gólfi. Stílhrein innrétting og upphengt salerni.Hol með flísum á gólfi, þar er fataskápur.Stofa/borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgegnt á svalir.Eldhús með flísum á gólfi, sérsmíðuð viðar innrétting með góðu skápa og vinnuplássi. Helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð ásamt uppþvottavél.Stigi sem liggur að neðri hæð er með nýlegu teppi.Hol með parketi á gólfi.Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskáp.Barnaherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum, lítill fataskápur í einu þeirra.Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum, snyrtileg sérsmíðuð viðar innrétting og baðkar. Þvottahús með flísum á gólfi að hluta, rest er máluð, inn af þvottahúsi er gott rými, þar er sturtuklefi.Geymsla með dúk á gólfi, mjög rúmgóð. Bílskúr með máluðu gólfi og hurðaopnara. Hann er 37,3 fm.Bílaplan er steypt og með hitalögn.Lóð er öll frágengin á snyrtilegan hátt og á baklóð er steypt og stimpluð stétt.Snyrtileg og vel við haldin eign á góðum stað í Njarðvík.Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.