Þórunn Pálsdóttir lgf Háborg kynna glæsilega nýlega uppgerða 4ra herbergja íbúð á efstu hæð á þessum vinsæla stað. Frábært skipulag. Mikið og fallegt útsýni yfir Laugardalinn og alveg að Snæfellsjökli og víðar. Þrjú svefnherbergi, góðar bjartar stofur og svalir til suðausturs. Opið fallegt eldhús og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lgf, í síma 773-6000, tölvupóstur thorunn@haborg.is.Sameiginlegur inngangur er með hæðinni fyrir neðan, en stigahúsið er bjart og skemmtilegt.
Komið er í glæsilegt alrými sem samanstendur af holi, bjartri og fallegri stofu og opnu eldhúsi. Holið er með góðum skápum en þaðan er gengið er út á suðaustursvalir.
Eldhúsið er stílhreint með hvítum innréttingum en það var endurnýjað árið 2021 og það sama ár voru innihurðar, gólfefni og skápar á gangi og í hjónaherbergi endurnýjaðir.
Glæsilegt útsýni er úr alrýminu til suður og vesturs, en einnig til austurs úr eldhúsgugga þar sem Úlfarsfellið nýtur sín vel.
Fallegt harðparket er á öllum gólfum nema á baðgólfi þar sem eru parketflísar, en baðherbergið var glæsilega endurnýjað árið 2020 með gólfhita, baðkeri með sturtu í og tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt handklæðaofni. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Gangur með góðum skápum liggur úr alrýminu, en þar er baðherbergið ásamt þremur svefnherbergjum. Fyrst á vinstri hönd er gott barnaherbergi, næst er minna barnaherbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa og loks hjónaherbergið er rúmgott með gluggum á tvo vegu með fallegu útsýni og góðu skápaplássi.
Skv. samþykktum teikningum var eldhúsið lokað, en veggur milli stofu og eldhúss var tekinn þegar eldhúsið var endurnýjað. Þá eru 39,9 fm svalir til norðvesturs út úr stofu skv. samþykktum teikningum frá árinu 2003, en þær hafa ekki verið byggðar.
Tvær sérgeymslur íbúðarinnar eru í kjallara. Önnur mjög rúmgóð með glugga og hin undir stiga. Birt flatarmál er 99,3 fm en Íbúðin sjálf er 88,3 fm og geymslurnar samtals 11 fm auk súðarfermetra. Sameiginlegt þvottahús hússins er einnig í kjallara ásamt því að þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað að utan og ber helst að nefna að skipt var um þak 2013 og þ.m.t. sperrur, þakpappa, rennnur og járn, en þakið var síðan málað árið 2022.
Árið 2013 var skipt um gler í öllum gluggum íbúðarinnar nema svalahurð og glugga í holi þar sem gler og gluggar voru endurnýjaðir árið 2022, en baðgluggi árið 2020.
í mars 2018 voru frárennslislagnir fóðraðar og niðurföll í kjallara endurnýjuð. Árið 2020 var múrviðgert og steinað á norður og austurhlið.
Sérlega heillandi og fallega endurnýjuð útsýnisíbúð á þessu vinsæla stað þar sem stutt er í alla þjónustu í Skeifunni og Glæsibæ, skóla og útivistarparadísina í Laugardalnum.Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir lgf, í síma 773-6000, tölvupóstur thorunn@haborg.is