VALBORG FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu einstaklega fallega, bjarta og vel skipulagða 7 herbergja 195,4 fm. íbúð á 2. hæð með sérinngangi í fjórbýli að Glitvöllum 1, 221 Hafnarfirði. Íbúðin er á tveimur hæðum og öll herbergi stór og rúmgóð. Suður-svalir 19,3 fm. Húsið er klætt að utan og því viðhal... Sýna meira
VALBORG FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu einstaklega fallega, bjarta og vel skipulagða 7 herbergja 195,4 fm. íbúð á 2. hæð með sérinngangi í fjórbýli að Glitvöllum 1, 221 Hafnarfirði. Íbúðin er á tveimur hæðum og öll herbergi stór og rúmgóð. Suður-svalir 19,3 fm. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið. Byggt árið 2007. Glitvellir 1, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 229-5268 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð 195.4 fm. Nýtanlegir fermetrar eru fleiri en tilgreint er, þar sem íbúðin er að hluta til undir súð á efri hæð.Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur .Nánari upplýsingar um eignina:Gengið upp tröppur utandyra og komið inn um sérinngang. Neðri hæð:Forstofa: Fallegir skápar. Dökkar flísar á gólfi. Stór og góð geymsla á vinstri hönd, einnig með sérinngangi utanfrá. Herbergi I: Á hægri hönd í forstofu. Rúmgott eins og önnur herbergi í íbúðinni.Gengið inn í stofu með í sameiginlegu rými með eldhúsi og borðstofu. Bjart og fallegt rými með stórum gluggum og gólfhita. Útgengi á svalir.Eldhús: Falleg hvít innrétting frá Axis. Svört granít borðplata á innréttingu. Gott skápapláss. Svartar flísar á gólfi. Gólfhiti.Stofa og borðstofa: Massíft fallegt eikarparket. Björt og rúmgóð og fallegt rými. Útgengi á 19,3 fm suðursvalir. Gólfhiti.Baðherbergi neðri hæð: Snyrtileg innrétting og bæði sturta (nýr sturtuklefi) og hornbaðkar. Gólf og veggir flísalögð. Handklæðaofn. Gólfhiti.Hjónaherbergi á neðri hæð: Stórt herbergi. Gott skápapláss, massíft eikarparket á gólfi. Gólfhiti.Gengið upp fallegan teppalagðan stiga á efri hæð.Efri hæð:Sjónvarpshol: Rúmgott, með þakglugga. Gólfhiti. Harðparket.Baðherbergi og þvottahús: Stórt og rúmgott. Góð baðinnrétting, sturtuklefi og gott geymslupláss. Einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Gólfhiti.3 herbergi á hæðinni: Öll stór og rúmgóð. Skápar. Mikið geymslu pláss undir súð. Harðparket á gólfum.Innfelld halogen ljós eru í lofti í stærstum hluta íbúðarinnar.Eignin er vel staðsett í Vallahverfinu þar sem örstutt er í falleg útivistarsvæði og alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, sundlaug, verslanir, íþróttasvæði Hauka að Ásvöllum ofl.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, tilseljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hlutafasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegumkaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.