Fasteignasalan
BÆR,
Auður &
Ólafur kynna: góða
2ja herbergja íbúð á miðhæð hússins að
Glaðheimum 14a, 104 Reykjavík.
> Nýlega endurnýjuð eldhúsinnrétting
> Suðursvalir
> Húsið stendur innst í botnlanga á mjög rólegum stað
> Næg bílastæði
> Gróið hverfi rétt við Laugardalinn
> Frábær fyrstu kaupNánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur.
Komið inn á
gang, sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.
Eldhús: með rúmgóðri L-laga innréttingu og borðkrók. Tengt fyrir uppþvottavél. Innréttingin var endurnýjuð fyrir 6 mánuðum að sögn seljanda.
Stofa: snýr að bakgarði og er með svalir í suður.
Svefnherbergi: er bjart með lausum fataskáp, sem fylgir.
Baðherbergi: klósett, handlaug & sturtuklefi ásamt opnanlegum glugga. Sturtuklefi ásamt handlaug/skáp var endurnýjað nýlega, að sögn seljanda.
Sér geymsla á jarðhæðinni.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæðinni, hver með sína vél
Lóðin er sameiginleg.
Lóðin er leigulóð. Lóðarleigusamningur gildir frá 1968 til 75 ára.
Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð merkt 01-02-01, birt stærð er 53,1 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð 2,8 fm. Heildarstærð er 55,9 fm. Svalir eru 3,1 fm. Húsið var byggt 1960.
Stutt í þjónustu, verslanir, skóla og sundlaug.
Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.