Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og rúmgóð 134 m2, 5 herbergja endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi auk bílastæðis í bílakjallara við Gerplustræti 8 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 134 m2, þar af íbúð 124,6 m2 og geymsla 9,4 m2. Eignin skiptist í stofu, eldhús, sjónvarpshol, fjögur svefnherber... Sýna meira
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og rúmgóð 134 m2, 5 herbergja endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi auk bílastæðis í bílakjallara við Gerplustræti 8 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 134 m2, þar af íbúð 124,6 m2 og geymsla 9,4 m2. Eignin skiptist í stofu, eldhús, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Innréttingar frá HTH í eldhúsi og baðherbergi. Fataskápar frá HTH í svefnherbergjum. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í strætóstoppistöð og útivistarsvæði með fallegum gönguleiðum.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.Gangur með parketi á gólfiSvefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum.Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.Svefnherbergi nr. 4 er með parketi á gólfi og fataskáp.Sjónvarpshol er með parketi á gólfi, opið inn í stofuStofa, borðstofa og eldhús eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á stórar svalir til suðurs sem eru að hluta yfirbyggðar. Í eldhúsi er hvít eldhúsinnrétting, eldhúseyja, helluborð, ofn og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, handlaug og „walk-in“ sturtu með glerskilrúmi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara með góðu geymsluplássi.Sérgeymsla í sameign fylgir íbúðinni 9,4 m2.Bílastæði í bílageymslu, merkt B18, fylgir eigninni. Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 84.650.000 kr. Verð kr. 87.900.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.