Fasteignasala Mosfellsbæjar s. 586 8080 kynnir: Falleg 62,8 m2, 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi og sérafnotarétti á lóð fyrir framan stofu í lyftuhúsi við Gerplustræti 31 í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Falleg gólfefni, vandaðar innréttingar, kæli- og frystiskápur og uppþvottavél í eld... Sýna meira
Fasteignasala Mosfellsbæjar s. 586 8080 kynnir: Falleg 62,8 m2, 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi og sérafnotarétti á lóð fyrir framan stofu í lyftuhúsi við Gerplustræti 31 í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ. Falleg gólfefni, vandaðar innréttingar, kæli- og frystiskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu, gluggatjöld frá Álnabæ. Gerplustræti 31, Mosfellsbæ, íbúð merkt 01-02, 62,8 m2 íbúð á 1. hæð, birt stærð er 62,8 m2, þar af geymsla 5,5 m2. Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxKomið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Úr forstofu er komið inn á gang með harparketi á gólfi. Á gangi er rúmgott svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi. þar við hlið er flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtuklefa, og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús og stofa eru í einu björtu rými harðparket á gólfi. Falleg innrétting frá Axis með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni, keramikhelluborði og viftu. Útgengi er úr stofu út á hellulagða sér verönd til suðurs.Innréttingar og skápar eru frá Axis. Borðplötur eru þykkar harðplastplötur í dökkum viðarlit og fataskápar í sama viðarlit.Innihurðir eru yfirfelldar og hvítlakkaðar frá Axis.Verð kr. 39.900.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.Einnig er hægt að ná í Svanþór í síma 698-8555, og Sigurð í síma 899-1987, .Fasteignasala Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Mosfellbæ. Opið frá kl. 9-17 alla virka dagaHeimasíða Fasteignasölu MosfelsbæjarFasteignasala Mosfellsbæjar á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.