** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð ... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 108,0 m2, 3-4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð (2. hæð frá götu) með sérinngangi af opnum svalagangi við Gerplustræti 16, ásamt bílastæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, sjónvarpshol (hægt að breyta í herbergi), forstofu, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús og stofu. Sérgeymsla á jarðhæð. Stórar svalir með svalalokun í suðurátt. Mjög fallegt útsýni. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Eignin er skráð 108,0 m2, þar af íbúð 99,5 m2 og sérgeymsla 8,5 m2. Bílastæði merkt B06 í bílageymslu fylgir eigninni.Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með rúmgóðum fataskápum.Eldhús er L-laga innrétting frá HTH. Í innréttingu er blástursofn, helluborð, og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.Stofa/Borðstofa er rúmgóð með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar suðursvalir (15 m2) með svalalokun í suðurátt.Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og harðparketi á gólfi.Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og harðparketi á gólfi.Sjónvarpshol er með harðparketi á gólfi. Auðvelt að breyta í auka herbergi.Baðherbergi/Þvottaherbergi er flísalagt með innréttingu frá HTH. Sturtan er flísalögð með gleri og einnig er upphengt salerni. Gólfhiti er á baði.Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinn (8,5 m2) ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.Bílastæði í bílageymslu er merkt B06. Búið er setja upp hleðslustöð. Húsið er hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar og var byggt af Byggingarfélaginu Bakka ehf. Gönguleið að húsi er hellulögð og með snjóbræðslu.Verð 74.900.000 kr.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.