Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna fallega, bjarta og vel skipulagða 67,1fm, 2ja herbergja íbúð á 2. hæð (jarðhæð frá götu) með sérinngangi og 15,3fm yfirbyggðum svölum til suðvesturs að Gerplustræti 16, 270 Mosfellsbær. Glæsilegt útsýni í átt að Úlfarsfelli út um stofugluggan og af svölum. Húsið er hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar arkitekts og var byggt af Byggingarfélaginu Bakka árið 2015. Gönguleið að húsi er hellulögð og með snjóbræðslu. Aðeins átta íbúðir í húsinu. Eignin skiptist í forstofu, rúmgott og bjart alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, stórum 15,3fm yfirbyggðum svölum til suðvesturs, rúmgóðu svefnherbergi með góðu skápaplássi, baðherbergi með "walk in sturtu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla á 1. hæð í sameignargangi. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á 1. hæð. Falleg og björt eign á eftirsóttum stað í Helgafellslandi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, samgöngur og fallega náttúru. Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.isEignin Gerplustræti 16 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 235-5314, birt stærð 67.1 fm. Þar af er sérgeymsla á 1. hæð merkt 0104, skráð 5,7fm.Nánari lýsing:Forstofa: Gengið inn um sérinngang. Tvöfaldur fataskápur. Flísar á gólfi.
Alrými: Rúmgott alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi.
Eldhús: Samliggjandi og opin við stofu.
Innrétting með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð, innfellt helluborð í eldhúsbekk ásamt vask. Aðstaða fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa: Rúmgóð með fallegum stóum gluggum með fallegu útsýni í átt að Úlfarsfelli. Samliggjandi og opin við eldhús. Útgengt út á stórar yfirbyggðar svalir.
Svalir: 15,3fm yfirbyggðar svalir til suðvesturs.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Rúmgott með "walk in" sturtu með glerskilrúmi. Upphengt salerni, innrétting með neðri skápum, skúffum og vaski. Stór spegill fyrir ofan vask með innbyggðri lýsingu. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er innaf sameignargangi. 5,7fm.
Sameign: İ sameign allr eru stigahús (0109), inntaksrými (0110), gangur/ hjóla & vagnageymsla (0111) opinn gangur / stigi (0204 og 0304) og þak (0401) ásamt ytra byrði húss.
Rafmagn: Sér rafmagnsmælar eru fyrir hverja séreign í húsinu. Sameign allra er á sér mæli og skiptist kostnaður jafnt milli séreigna í húsinu. Mælar og inntak eru staðsett í inntaksrými merkt 0110 í sameign allra.
Hiti: Sameiginlegur mælir er fyrir hita í húsinu og skiptist kostnaður miðað við upphitað rúmmál séreigna auk jafnrar hlutdeildar í upphitun í sameign allra. Kostnaður miðast við ofangreindar hlutfallstölur í hitakostnaði. Vatnsinntak og hitamælar eru staðsett í inntaksrými merkt 0110 í sameign allra.
Falleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og stórum yfirbyggðum svölum til suðvesturs á 2. hæð (jarðhæð frá götu) í nýlegu og vinsælu hverfi í Mosfellsbæ. Glæsilegt útsýni í átt að Úlfarsfelli og stutt í stórbrotna náttúru og fallegar gönguleiðir.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.