Eignamiðlun kynnir:
Mjög fallegt og mikið endurnýjað 229,4 fm raðhús á pöllum við Geitland 13 í Fossvogi. Bílskúr tilheyrir. Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum. Mikil lofthæð er í hluta hússins. Breytingar hafa verið gerðar á hluta hússins sem Gláma Kím teiknaði. Garður til suðurs með stórri timburverönd og grasflöt. Húsið stendur neðan götu og eru bílskúrar í bílskúrslengju á móti húsinu.Samkvæmt Fasteignayfirliti er húsið skráð 201,8 fm og bílskúrinn 27,6 fm,
samtals 229,4 fm.
Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511 magnea@eignamidlun.is
Nánari lýsing: Aðalhæð:Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með skápum. Frá forstofu er komið í flísalagt hol með skápum. Falleg stór sérsmíðuð hurð með gleri í er á milli forstofu og hols. Mikil lofthæð er í holi. Inn af holi er flísalögð snyrting. Til vinstri úr forstofu er gengið í eldhúsið. Sérsmíðuð innrétting úr hlyn er í eldhúsi. Steinn er á vinnuborðum. Stór borðkrókur með sérsmíðuðum eldhúsbekk og borði. Inn af eldhúsi er gengið í þvottahús og búr. Einnig er sérsmíðuð innrétting í þvottahúsi og búri. Bakinngangur er í þvottahúsi. Flísar á gólfi í forstofu, holi, eldhúsi, þvottahúsi og búri eru úr náttúrusteini. Á árunum 2001-2002 voru gerðar breytingar á eldhúsi, þvottahúsi, búri og forstofu. Gláma Kím teiknaði breytingarnar. Frá holi er gengið upp þrjú þrep í stofuna. Mjög rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og mikilli lofthæð. Stofan nýtist sem stofa og borðstofa. Auk þess hefur verið stúkað af lítið vinnuherbergi með rennihurð. Áður var sólstofa í stofu en veggur hefur verið tekinn niður og stofan stækkuð. Í stofunni er stór opnanleg rennihurð sem býður upp á gott útsýni yfir garð og til suðurs og möguleika á loftkælingu. Gólf í stofu er parketlagt.
Neðri hæð:Steyptur parketlagður stigi er á milli hæða með sérsmíðuðu handriði. Á neðri hæð eru fjögur herbergi, baðherbergi, hol, geymsla og kyndiklefi. Herbergin eru öll parketlögð. Tvö herbergjanna snúa til suðurs og tvö þeirra eru norðan megin (annað herbergjanna norðan megin er mjög stórt en hitt lítið). Frá holi er gengið er út í garð til suðurs (hol mætti einnig nýta sem herbergi). Baðherbergið er flísalagt. Innrétting við vask. Baðkar með sturtu í. Í garði er stór timburverönd og grasflöt. Geymsla er undir stiga. Kyndiklefi er á neðri hæð.
Bílskúr tilheyrir húsinu sem er í bílskúrslengju á móti raðhúsalengjunni. Bílskúrslengjan var nýlega tekin í gegn í viðamikilli framkvæmd sem var farið í árið 2024. Hiti, vatn og rafmagn er í bílskúr. Á bílskúrshurð er talnalás en einnig er hægt að nota fjarstýringu. Útiljós með tímastillingu. Komið er kerfi fyrir rafhleðslu.
Fallegur garður til suðurs með stórri timburverönd og grasflöt. Geymsluskúr er í garði og auk þess krakkahús.
Frábær staðsetning á skjólsælum stað. Stutt í leikskóla, skóla og alla helstu þjónustu. Í Fossvogsdalnum er fallegt útivistarsvæði með gönguleiðum.***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook