Eignaver 460-6060
Geirþrúðarhagi 8a íbúð 102.
Glæsileg, rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í fjórbýli á góðum stað í Hagahverfi. Íbúðin er 105,5 fm. Nánari lýsing:
Forstofa, flísar á gólfi og góður fataskápur.
Geymsla og þvottahús er við forstofu, flísar á gólfi. Góð eikar innrétting með miklu geymsluplássi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, lítill skol-vaskur.
Hol/gangur, parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú talsins. Parket á gólfum herbergja og fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi og á veggjum uppí loft. Innrétting úr eik, baðkar og sturta.
Stofa og eldhús koma saman í einu rými. Fallegt parket með fiskibeinamynstri á gólfum.
Vönduð og falleg innrétting er í eldhúsi úr spónlagðri eik, ljósir bekkir, mikið skápapláss, parket á gólfi og flísar á milli skápa. útgangur út á steypta verönd úr eldhúsi til vesturs sem hefur verið stækkuð.
Stofan er björt og rúmgóð, stórir og góðir gluggar.
Annað:- Rúmgóð og falleg eign.
- Vandaðar innréttingar og mikið skápapláss.
- Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
- Innréttingar úr spónlagðri eik.
- Gólfhiti.
- Rafmagnslögn tilbúin fyrir hleðslustöð.
- Rafmagnstengi tilbúið á verönd fyrir heitan pott.
- Falleg og gróin lóð.
Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is