Geirþrúðarhagi 3d
Mjög björt og falleg þriggja herbergja 138,2m
2 raðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr í Hagahverfi.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús, geymslu sem nýtist í dag sem svefnherbergi og bílskúr.
Innréttingar og fataskápar eru allar mjög vandaðar í ljósum litum, plastlagðar með hvítu og ljósum viðarlit.
Innihurðir eru hvítar.
Á gólfum er harðparket og flísar.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús er með hvítri innréttingu sem er römmuð inn með ljósum viðtalit og eldunareyja. AEG helluborð og ofn. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu, harðpaket á gólfi, hurð til suðurs út á tæplega 40 m² steypta verönd með steyptum skjólveggjum og geymsluskúr.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem loft eru tekin upp og harðparket á gólfi. Úr stofu stofu eru hurð út á baklóð.
Baðherbergi flísar eru á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Geymsla/herbergi harðparket á gólfi og fataskápur. ( Nýtist sem herbergi í dag)
Þvottahús er á tengigangi milli forstofu og bílskúrs. Þar eru gráar flísar og plastlögð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsinu.
Bílskúr er skráður 27,1 m² að stærð. Þar eru flísar á gólfi og loft er tekið upp.
Annað
- Allar innréttingar eru frá Tak-innréttingum.
- Stórt steypt bílaplan með hitalögnum í, lokað kerfi.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Loftskiptikerfi er í húsinu.