Fasteignasalan Torg og Helgi Jónsson lgfs, sími : 780-2700 kynna : Um er að ræða 76,1fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt 27,1fm bílskúrs, samtals : 103,2fm Húsið er byggt 1946 og bílskúrinn 1967. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING : Komið er inn um sérinngang í forstofu. Innaf forstofu er lítil geymsla. Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu, flísar á milli skápa, parket á gólfi. Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi. Endurnýjað baðherbergi með sturtu, innrétting við vask, tengi fyrir þvottavél, hiti í gólfi, flísar á veggjum og á gólfi. Bílskúrinn er með steyptu gólfi, hlöðnum veggjum, þak og veggir óeinangraðir. Útveggir hússins hafa verið einangraðir og klæddir með trapisujárni. Þakjárn hefur verið endurnýjað. Sameiginlegur kyndiklefi er á jarðhæðinni. Garðurinn er sameiginlegur með íbúðunum.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á helgi@fstorg.is