Eignamiðlun kynnir:
Um er að ræða vel skipulagt og fjölskylduvænt 208 fm einbýlishús á Flötunum í Garðabæ. Eignin var töluvert standsett nýlega og stendur á 842 fm lóð sem er vel hirt og afgirt. Íbúðarrými er skráð 165 fm og tvöfaldur 43 fm bílskúr. Ca. 10 fm eru óskráðir í kjallara og eru fullnýtanlegir. Í kjallara er útleigueining með baðherbergi og sérinngangi. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottaherbergi og geymslu í aðalrými. Aðalrými er nýlega standsett. Tvöfaldur bílskúr er við húsið og í kjallara er lítil studíóíbúð.Nánari lýsing:Rúmgóð
forstofa með innbyggðum fataskápum og flísum á gólfi. Innaf forstofu er
gestabaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, vegghengt salerni og góð innrétting við vask og gluggi.
Úr forstofu er inngengt í
þvottaherbergi með
geymslu innaf. Útgengt er úr þvottaherbergi út í garð. Komið er úr forstofu í hol þaðan sem að gengið er í önnur rými eignar. Útgengi er út í garð á hellulagða
verönd til suðurs úr alrými.
Stofa og borðstofa renna saman í bjart rými og er parket á gólfum.
Eldhús er rúmgott og með fallegum nýjum innréttingum og parketi á gólfum. Eldhúsið er opið yfir í borðstofu að hluta. Steinn er á borðum, vönduð tæki og gluggar sem gera rýmið bjart. Frá holi er eitt
herbergi með parketi á gólfi. Á herbergisgangi eru tvö
barnaherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi innaf, parket er á gólfum.
Baðherbergið er nýtt og glæsilegt með flísum á gólfi og veggjum og sturtu með innbyggðum blöndunartækjum. Falleg innrétting og gluggi. Sérinngangur er af bílaplani í ágætis
studíóíbúð með baðherbergi með sturtuklefa og alrými þar sem að hægt væri að setja upp eldhúskrók.
Bílskúr er tvöfaldur og er hellulagt bílaplan framan við með hitalögn sem getur tekið við fjórum til fimm bílum.
Endurbætur að sögn eigenda:
-Búið er að endurnýja gler í húsinu og var skipt um síðasta gler árið 2018.
-Þak var endurnýjað 2018, ál-sink frá Stjörnublikk, einnig þakrennur og flastingar.
-Eldhúsinnrétting, baðherbergi, gestasnyrting, innihurðar, góflefni, fataskápar ofl var endurnýjað árið2024.
-Steyptar nýjar tröppur árið 2020, og smíðað handrið úr rústfríu stáli.
Rúmgóðar hellulagðar verandir við hús til suðurs og meðfram gafli til austurs, gróinn lóð bakvið hús til norðurs.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði sem og stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook