Lind fasteignasala og Hannes Steindórsson kynna: Fallegt og mikið uppgert einbýli á einni hæð við Garðaflöt.Mjög gott skipulag, mikil lofthæð, stórar timburverandir, malbikaður knattspyrnuvöllur / tennisvöllur.Búið er að endurnýja húsið mjög mikið, nánast allt hefur nýlega verið endurnýjað að innan;... Sýna meira
Lind fasteignasala og Hannes Steindórsson kynna: Fallegt og mikið uppgert einbýli á einni hæð við Garðaflöt.Mjög gott skipulag, mikil lofthæð, stórar timburverandir, malbikaður knattspyrnuvöllur / tennisvöllur.Búið er að endurnýja húsið mjög mikið, nánast allt hefur nýlega verið endurnýjað að innan; gólfefni, eldhús, bæði baðherbergi, innihurðar ofl. Nánast allt gler og gluggar, nýtt þakjárn og pappi 2021. Gluggar og þakkantur málað 2022. Forstofa: Stór forstofa, fallegar flísar frá Vídd á gólfi.Gestasalerni: Endurnýjað og fallegt, upphengt salerni frá Duravit og smart subway flísar frá Vídd.Svefnherbergi: Tvö parketlögð og rúmgóð svefnherbergi eru inn af forstofu, annað var upphaflega teiknað sem skrifstofa og er á hægri hönd þegar komið er inn úr forstofunni. Nýir gluggar í báðum. Geymsla: Lítil geymsla við hlið gestsalernis( hægt að opna inn í bílskúrinn en lokað er á milli í dag).Stofa og borðstofa: Rúmgóðar og bjartar, mikil lofthæð, útgengi út á stóra verönd í sem snýr norðvestur, við endann er svo hlið inn á steypta boltavöllinn. Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting, borðplötur eru hvítur kvarts steinn frá Fígaró og niðurlímd hvít handlaug frá sömu verslun. Stór nýr eldhúsgluggi og rými fyrir borðkrók. Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt svefnherbergi, stór fataskápur og útgengi út á alveg lokaða verönd þar sem morgunsólin er. Útidyrahurðin er ný og eins útidyrahurðin af þessari verönd og inn í bílskúrinn.Svefnherbergi: Barnaherbergi: Parketlagt og rúmgott með nýjum glugga. Aðalbaðherbergi: Mjög glæsilegt, Atlas Concorde flísar frá VÍdd; gráar á veggjum, mattar svartar á gólfi, fallegt frístandandi baðkar og upphengt salerni frá Duravit, grá innrétting, svört blöndunartæki og sérvalin borðplata frá Efnisveitunni.Þvottahús: Rúmgott flísalagt þvottahús með miklu skápaplássi, þaðan er útgengi út á verönd og boltavöll.Sturtuherbergi: Sér sturtuherbergi er inn af þvottahúsi, það er nánast upprunalegt. Bílskúr: 33 fm bílskúr með hita,rafmagni og gluggum. Útgengt er úr bílskúr baka til út á verönd (útgengt úr hjónaherbergi á sömu verönd). Bílaplan og garður: Hellulagt bílaplan, lóðin er 805 fm. Eignin er sérlega vel skipulögð og staðsett á eftirsóttum stað á Flötunum í Garðabæ. Húsið er rétt hjá Íþróttasvæði Stjörnunnar, Flataskóla, Garðatorgi, steinsnar frá sjávarsíðunni og stofnæðum í umferðinni. Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórssson s.699-5008 Nýtingarhlutfall hússins má vera allt að 0.35% af stærð lóðar og því er heimilt er að stækka húsið í 281 fm samkvæmt deiliskipulagi Flatahverfis, samþykkt 3. október 2013.